


Sauðabindið er prjónað úr ull af íslensku sauðkindinni sem verið hefur lífæð þjóðarinnar frá upphafi Íslandsbyggðar. Varan er afar þjóðleg og eru bæði hönnun og framleiðsla alíslensk. Bindin eru ýmist einlit eða mynstruð. Ragna Ágústsdóttir hannaði lopapeysumynstrið á bindunum á 7. áratug síðustu aldar en hún er einn af frumkvöðlum íslenskrar lopapeysugerðar.
Hönnun: Kristbjörg María Guðmundsdóttir og Birgir Hákon Hafstein
Sauðabindin má einnig finna á Facebook







